Blogg nr. zwei
Jæja, nú er gaman.
Var að frétta að Ollý systir fékk verðlaun í skólanum sínum. Innilega til hamingju systir mín.
Ég er búin að vera að reyna að finna einkunnirnar mínar á heimasíðu míns skóla; vantar eina. Glöð með allt nema eina einkunn ennþá. Toppaði ársreikninginn og ferðamálafræðina, get ekki verið annað en glöð með að gera best þar; 8. Klúðraði tölfræðinni fékk 7 en ekki 9 eins og stefnt var að. Ítalskan 10, ekki hægt að biðja um meira! Rekstrarhagfræði 7, meðaleinkunnin er 6.07 þannig að ég má vera glöð.
Hér er líka gaman. Við erum enn í Wilhelmshaven, búin að ganga fram og til baka á 'Keiser Wilhelms Brücke'. Búin að skoða stríðssögusafn með U-boot und alles. Fórum líka í sýndarveruleika´safn´ þar sem við upplifðum neðansjávarlífið, 100 m. mínus. Hákarlar, humar og svo hin ýmsu tæki og rannsóknir sem Þjóðverjar hafa notað til að skoða og rannsókna lífið neðansjávar. Mikil upplifun og afskaplega skemmtilegt.
Bráðum kemur helgi og okkur sýnist að hér verði hátíð með vatnasporti og gamni og gríni. Aldrei að vita nema dvölin verði framlengd. Við eigum eftir að skoða Lystigarðinn og Sjávardýrasafnið og eflaust margt fleira.
Meira seinna!!
Kveðja, Sigga og fjölskylda.

4 Comments:
frábært, gaman gaman!
Þú getur verið glöð með þínar einkunnir líka nema kanski þessa einu sem þú gerðir hærri kröfur á, ég er líka viss um að þú fengir verðlaun ef þau væru veitt í HA. :)
This comment has been removed by a blog administrator.
Hæbb,
Míns segir takk :) og til lykke til baka sko :)
Er búin að vera í tölvupásu.
Gaman að lesa utanlandsblogg ;)
Post a Comment
<< Home