Fyrsta bloggið
Halló allir!
Nú kemur önnur tilraun til að blogga hér á þessari síðu sem hún systir mín Ólina var svo hugulsöm að setja upp fyrir fjölskylduna mína. Fyrsta tilraun var í gær þá rofnaði þetta rándýra GPRS samband þegar ég var búin að semja smá texta, þá nennti ég ekki meir.
Nú erum við stödd í Wilhelmshaven, einni af borgum Þjóðverja. Við erum búin að ganga okkur hálfa leið upp að hnjám með því að skoða borgina. Á morgun á að fara og skoða söfn, t.d. kafbátasafn, sjávardýrasafn og svo er hér djúpsjávarhermir eða einhver sýndarveruleiki úr hafdjúpunum sem stendur til að athuga líka. Annars erum við búin að skoða kaviarverksmiðju í Cuxhaven og flugvéla-og sögusafn þar í nágrenni. Þar voru herflugvélar, þyrlur og fleira flott. Þar áður vorum við þrjár nætur í eyjunni Sylt sem er rétt sunnan við dönsku landamærin. Þangað eru bílar fluttir á lestarvagni. Maður bara keyrir bílinn uppá lestarvagn. drepur á bílvélinni, setur í handbremsu og horfir svo á landslagið út um gluggann á leiðinni sem tekur tja, ca. 30 mínútur.
Látum þetta duga í bili.
Bestu kveðjur frá okkur öllum, kátum.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home