Heitt i Hamborg
Sunnudagur: Nú er stórfjölskyldan stödd í Hamborg. Við komum hingað upp úr hádeginu. Hitinn þónokkur tuggugu og eitthvað gráður og sólskin. Heimilisbílnum eða ‘Stóra utanlands’ var lagt á húsbílastæði niður við höfn og síðan stormaði liðið, hver og einn á sínum tveimur jafnfljótum upp í bæ. Kvöldverður nálægt Ráðústorginu, þar sem búið var að fylla torgið, sem er þónokkuð stórt, með styttum af sama karlinum berandi tvær vatnsfötur, sína í hvorri hendi. Karlinn hafði sama lagið á öllum styttunum en enginn þeirra var eins á litinn eða með sama mynstrinu.
Mánudagur: Farið í hafnarrúnt með útsýnisbáti, (í alveg rosalegum hita það voru um 30 gráður við bílinn þegar við lögðum í’ann í morgun um kl. 10) og allir mörgþúsund-fermetrar Hamborgarhafnar skoðaðir, gámabryggjur og aðrar bryggjur, olíuhreinsun o.fl. Þetta er ótrúlega stórt svæði. Síðan gengum við um allan bæ, horft í glugga hjá Versace, Boss og fleirum frægum og líka öðrum minna frægum; en hvergi farið inn. Svo fórum við í mjög stóran lystigarð þar sem eru alls kyns blóm, tré og jurtir ásamt leiksvæði fyrir börn, kaffihús, fangelsi og fleira. Eftir níu tíma skoðunarferð þennan daginn komum við aftur í bílinn,’Stóra utanlands’, allir sælir en þreyttir og sofnuðu held ég bara vel við niðinn frá umferð bíla og lesta.
Þriðjudagur: Lagt af stað í norðurátt. Biggi og Ásta ætla að vera í Malmö á föstudag og við ælum að skoða Legoland áður en þau fara þangað. Komum við í húsbílabúð og matarstellið endurnýjað ásamt einhverju fleiru fyrir bílinn. Enduðum daginn á afskaplega huggulegu sveitatjaldstæði við vatn sem heitir Blistensee. Hér náðum við ekki að tengja okkur internetinu þannig að ekkert blogg var sett á síðuna góðu þetta kvöldið. Um nóttina hrukku svo allir upp af værum blundi við hellirigningu, þrumur og eldingar. Það voru nú meiri lætin. En þetta er náttúrulega stórkostlegt sjónarspil fyrir okkur Íslendingana sem sjáum aldrei eða heyrum svona læti í veðrinu þótt við hrökkvum ekki upp við rok og snjóbyl. En það er nú öðruvísi.
Miðvikudagur: Eftir morgunverð í miklum rólegheitum, þar sem var að sjálfsögðu boðið uppá nýbökuð rúnnstykki eins og svo oft í þessari ferð var lagt af stað í átt til landamæra Þýskalands og Danmerkur. Áætlunin hljóðar uppá að versla í landamærabúðunum, hitta hann Kurt í Süderlügum og enda í Vandel hjá Bjarna. Kurt er blessaður kallinn sem seldi okkur bílinn, Bjarni er sá sem aðstoðaði okkur í bílakaupunum. Bjarni á heima nokkurnveginn við hliðina á Legolandi þannig að það er mjög þægilegt að fá að vakna þar og geta tekið daginn snemma í Legolandinu. Sennilega missir Guddi af þessari ferð í Legoland því að flugurnar, þýsku, náðu að narta í hann í gær og í kvöld er Guddi með hendi á við boxhanska og fótlegg á við símastaur. Það er því nokkuð ljóst að hann hvílir sig á morgun.
Over and out í þetta sinn.
Sigga sígauni og fjölskylda.

6 Comments:
1. Sko. Ég er mest bömmeruð yfir þessu með "Stóra utanlands", þ.e. nafnið. Að síðan skuli svo heita "Nýi utanlands" er náttúrlega bömmer sko. :) Tíhí.
2. Svo. Aumingja Guddi með bitin. Klárlega bömmer. Ógó vont, ojbara. Er full hluttekningar.
3. Einnig. Langar hrikalega í Legoland. Verð að skella mér einhverntíman ;) Leyfi kannski Eyrúnu að koma með.
4. Þá. Er ekki pínu skrítið að hafa fangelsi í lystigarði? Tja... veit ekki... betrun kannski... pæling.
5. Að lokum. Have fun!
Í fyrsta lagi held ég að fröken Ólína sé að missa sig í skipulagningu á sumarverkefninu sínu fyrst hún er farin að kommenta í númeruðum málsgreinum *psst*, tókuði eftir að það vantaði efnisyfirlitið hjá henni ;) :P
Í öðru lagi held ég að ég muni eiga inni að fá töluvert af nýbökuðum rúnstykkjum á morgnana þegar þið komið heim.
Í þriðja lagi. Fyndið að við pabbi skulum hafa verið flugustunginn sama daginn, sérstaklega þar sem hendin á mér (sem var fórnarlambið) tvöfaldaðist einmitt og minnti mig þá á pabbastungurnar.
Í fjórða og síðasta lagi megiði skemmta ykkur ljómandi vel í Legolandi, muniði bara að hafa filmu í myndavélinni... eða nei, það var tívolíið... æji, þetta er allt saman Danmörk :D
í 6. og 7. lagi; fer ekki að koma ný færsla?? ;)
..er voða forvitin og spennt að lesa meiri ferðasögur :)
P.s.: Gleðilega þjóðhátíð!
Jæja gott fólk! Nú skuldiði okkur nýja bloggfærslu. Annars muniði hafa verra af! ... æji, ókei, kannski ekki. En skrifðiði nú allavega eitthvað skemmtilegt. Hvernig væri að pabbi bloggaði aðeins á sænsku? :)
Almáttugur... hvað gerðist eiginlega þarna í hitanum í Hamborg?
Maður bara spyr sig...
Fréttir hafa borist um símalínu að málin standi sem svo að búið sé að rita hvorki meira né minna en 3 bls af ferðasögu í Word, en eitthvað stendur GPRS sambandið á sér og vill ekki leyfa stóra-utanlands-húsbílafrúnni að tengjast veraldarvefnum :)
Post a Comment
<< Home