Sjómannadagur á morgun!!
Jæja gott fólk!
Maður er nú ekki sá duglegasti við bloggið, enda nóg annað að gera.
Í morgun vöknuðum við í Hollandi, í pínulitlum bæ sem heitir Midwolda. Vikrilega huggulegt tjaldstæði. Konan á tjaldstæðinu, annar eigendanna, var á leiðinni á árlegan markað í næsta þorpi til að selja reyktan urriða sem maðurinn hennar var búinn að ala og veiða og reykja. Einar og Birgir reyndu í morgun að veiða urriða á stöng, í tjörninni á svæðinu en höfðu ekki erindi sem erfiði, skildu öngulinn eftir í tjörninni. Eigendur tjaldstæðisins voru hin skemmtilegustu og var manni sko boðið í eldhús til að gera upp og þvílíkt. Þau hafa verið að skoða Ísland, eru með áhuga á að heimsækja það. Nú svo var þvegin þvottur, allir komust í sturtu, sem farið var að bíða eftir, þannig að allir fóru sáttir í háttinn, nýþvegnir, rakaðir og flottir.
Í nótt ætlum við að sofa á ‘stellplatz’ í pínulitlum bæ sem heitir Ditzum og er í Þýskalandi rétt austan við landamæri Hollands (engin sturta, ekkert klósett og enginn ruslagámur, en það er búið að finna bakaríið þannig að það er búið að redda heitum rúnnstykkjum með morgunmatnum í fyrramálið). Það er búið að skoða höfnina og ferjuna sem fer til Petkum, sem er þorpið norðan við fljótið Ems. Hér eru líka mikil mannvirki , lokur (slússur) sem passa það að ekki verði vart flóðs og fjöru í ám og skipaskurðum landsins. Svo er búið að skoða handavinnubúðirnar og viti menn í einni þeirra sat fullorðin maður og saumaði harðangurs-dúka. Flottur kall, sat og reykti sígarettur og það var greinilega langt síðan hann þvoði upp kaffibollann sinn, en útsamurinn var fallegur. Dagurinn var síðan endaður með þessum fínu þýsku svínasneiðum, steiktum á pönnu, og fréttum íslenska ríkisútvarpsins.
Veðrið, kapituli Íslendingsins, í dag var 20 til 25 gráður en vindur af hafi þónokkur, sumum okkar finnst þetta bara skítakuldi en mér er alltaf heitt!!! Ég skil bara ekkert í þessu.
Plan morgundagsins er að keyra til Hamborgar og vera þar næstu tvo daga.
Á morgun er sjómannadagur, til hamingju sjómenn með daginn!!!
Kveðja,
Familien Sigga og co.

4 Comments:
Ekki dugleg að blogga? Mér finnst það nú bara nokkuð vel af sér vikið að vera á ferðalagi í útlöndum og blogga á hverjum degi. Maður gæti haldið að þið væruð að nota bloggið sem afsökun fyrir því að þurfa ekki að senda mér póstkort!(?) ;)
This comment has been removed by a blog administrator.
Hæ
Þú varst auðfundin, kenndir mér að lesa skemmtileg skrif hjá hexunum. Til hamingju með tölurnar þínar þær eru nú bara glæsilegar. Var mest hissa á að fá 6 út úr ársr. sem ég var viss um að hafa klúðrað endanlega. Sé að þú ert líka búin að finna mitt blogg svo nú fylgjumst við með.
Bið að heilsa körlunum þínum og Guddi til hamingju með daginn (er það ekki svoleiðis)
Kveðja
Heiða
Hæbb,
Heyrðu... farðu í settings og members og removaðu mig sem user. Ég tók admin af mér og get ekki gert það sjálf
;)
Post a Comment
<< Home