Vá, nú er maður aftur kominn í ‘samband’.Þetta á eftir að verða langt blogg. Nú þegar hefur verið skrifuð sex blaðsíðna dagbók, sem er þó afskaplega götótt saga. En þess vegna verður þetta blogg gefið út í nokkrum pörtum ( enginn nennir nú að lesa 6 bls. af þessu rugli í einu, en kannski nenna því einhverjir með hléum). Ástæðan fyrir því að ekkert hefur frést af sígaunafjölskyldunni undanfarið er að það er engin GPRS-reikisamningur við Svía ( sem þýðir að ekki sé hægt að tengjast internetinu með gsm-símanum), hmm, skil nú ekkert í því, og eitthvað eru Norðmenn nú ekki með tæknina í lagi í öllum landshlutum. Á meðan geta þessir tæknivæddu Íslendingar, á ferðalagi utanlands, ekki gefið út bloggið sitt. Nú erum við ferðalangarnir komnir til Bergen, hér er GPRS-samband og hér kemur hluti af ferðasögunni.
Fimmtudagur 10.júní:
Karlrassgatið hann Kurt átti ekkert af vörunum sem við pöntuðum hjá honum í október 2003. Hann verður bara að gera svo vel og ‘eiga sig’ (gæti þýtt farðu rass og rófu, eða bíttu í ...ginn á þér eða eitthvað ennþá verra), við nennum bara alls ekki lengur að rembast við að fá að kaupa af manninum vörur ( skildu margir hafa kynnst því að biðja oft og lengi um að kaupmaður seldi manni vörur, og þá á ég við að mann vanti ákveðna hluti, jafnvel með vörunúmer á takteinum og að væntanlegur kúnni haldi á peningaseðlunum en sorry, það er svo mikið að gera hjá kaupmanninum svo mánuðum skiptir, að hann má ekki vera að því að panta hjá birgjanum sínum. Hnu og hnuss, nú er ‘væni’ kominn yfir þolmork.)
Vandel hjá Bjarna.
Jæja, allir nema Guddi fóru í Legoland. Guddi hræðilega slæmur vegna flugnastungna; þrjár stungur á vinstra fæti, niður undir ökkla og ein á baugfingri hægri handar, hann þvoði nú samt bílinn meðan hinir voru í Legolandi að skoða kubbabyggingar og annað. Ásta, Biggi, Sigga og Einar fóru í Legoland. Yndislegur dagur, mátulega heitt og mátulega margt fólk í Legolandi, gaman að ganga um í rólegheitum í Legolandi skoða ‘Miniland’ og fara í ‘Vatnasafari’ o.fl.
‘Schinken risotto a la Sigga’ í kvöldmat; þetta þýðir nú ‘soðin hrísgrjón, dönsk skinka úr dós, blandað saman með með fersku grænmeti og maísbaunum úr dós, allt blandað saman og brauð fyrir þá sem vildu; mjög lystugt, nokkuð gott, bara frábært.
Föstudagur 11. júní:
Keyrt frá Bjarna og Bryndísi, þeim íslensku í Vandel, til Malmö Svergie.
Verslað í Hundige Storcenter; maður verður nú að eiga í matinn!!
Ókum yfir hina miklu Eyrarsundsbú; óneytanlega mikið mannvirki. Byrjar með neðansjávargöngum, 4 km. og síðan 16 km. brú yfir hafið. Ótrúlegt, milli landa yfir hafið á einni brú. Eitthvað hefur nú maðurinn þróað með sér síðustu aldirnar.
Malmö skiluðum ‘gömlu hjónunum’ til frænda sinna. Ingimar frændi kom hlaupandi út á götu þegar hann sá þennan húsbíl keyra götuna, til að taka á móti gestunum. Þarna kvöddum við Bigga og Ástu og fórum á tjaldstæði í borginni.
Laugardagur 12. júní:
Malmö, Limhamn, tiltekt, hreingernig, stórþvottur í þvottahúsinu; vissi ekki fyrr að það gæti tekið 3 tíma, í beit, að þvo þvott í þvottahúsi en þannig var það.
Sunnudagur 13. júní:
Hrikaleg rólegheit, hjólatúr í safnaferð, ofur gaman. Í borgarhöllinni er búið að koma fyrir ýmsum söfnum um söguna og nútímann. Alls kyns söguþráður um grafir fornra manna, búið að flytja gömul kuml inn á safn, sagan um hvað innflytjendur komu með til landsins o.fl., rosalega skemmtilegt í gamalli höll eða kastala gamals konungs; ýmsir stílar, t.d. barok, rocoko og allt til nútímans, þ.e. hönnuðir nútímans sýna þarna það sem þeir búa til.
Mánudagur 14. júní:
Lögðum af stað norður sænsku Rívíeruna. Leiðindaveður, rigning og rok. Enduðum í Halmstad; Krono Camping, strönd, flottur staður. Kellingin (Sigga) með tak í baki; tók of mikið út úr hraðbankanum; hahahaha. Samt ekkert fyndið. Ég hef aldrei áður fengið verk í bak en oft tekið svona mikið og jafnvel meira út úr bankanum. Þetta er eitthvað óvænt sem hlýtur að jafna sig fljótlega.
Þriðjudagur 15. júní:
Rumskuðum eins og venjulega upp úr kl. 7. Úff, rigning og rok ; hausinn undir sæng og vöknuðum ekki almennilega fyrr en um kl. 10:30, en þá var líka ‘drive on James’ (eða sett í gírinn) til Gautaborgar; Liseberg Camping í Kärralund upp úr kl. 17, rólegt fram að háttatíma.
Miðvikudagur 16. júní:
Stefnum í Liseberg skemmtigarðinn; og afi og amma eða mamma og fóstri fara heim í dag ef að líkum lætur. Vonandi ná þau fluginu í tíma, Ingimar frændi Bigga sér um það. Frá klukkan 15 til klukkan 22 í Liseberg-garðinum; afrek út af fyrir sig. Garðurinn er fallegur og skemmtilegur, mikið af fallegum byggingum, gróðri o.fl. Einar naut sín vel í öllum tækjunum. Allir drulluþreyttir eftir daginn en ánægðir.
Fimmudagur 17. júní; þjóðhátíðardagur Íslendinga:
Farið frá Gautaborg um hádegi. Vorum löt og nenntum ekki á fætur, þ.e. nema Guddi. Hann vaknaði við fjölskylduhljóð eða óhljóð (eftir því hvernig á það er litið) úr næsta “húsi” um hálfáttaleytið og gat ekki sofið lengur fyrir samtölum, grenjum og öðrum hjóðum sem gjarna fylgir fjölskyldufólki með minni börn.
Leiðin liggur í átt til Örebro. Þar á að finna vatna- og skemmtigarð, eitthvað alveg svakalega spennandi og áhugavert. Sundlaugar, heitar og kaldar, rennibrautir, minigolf o.fl., Einar bíður eftir þessu og hinum á örugglega líka eftir að finnast gaman. Sundbolur allan daginn; annað verður ekki óhreint á meðan!! ;-)
Þar sem ekki er um að ræða hangikjöt í hátíðarmatinn þá var valinn næsti kostur sem mörgum þykir nú ekki verri, nautakjöt, entrécote, með bernaise, steiktum sveppum, rauðlauk og papriku og svo smá hrásalat.
Gott veður þennan dag, þó best undir kvöldið.
Nýi utanlands á ferðinni
Brekkusíðufjölskyldan segir frá

4 Comments:
Hey, ég las allt í einu :) ... fæ ég þá ekki nautakjöt? ég fékk bara 2 grilluð svínarif klukkan ellefu um kvöldið á 17. júní
Míns þolir alveg a.m.k. viku-blogg.
Fullt af reiki í Borgarfirði... Tal-Síminn-OgVoda... hvaðþettaheitiralltsaman...
C ykkur kannski, vonandi, um helgina.
Skrepp mér aftur norður :)
hvahh, heldur fólk að það geti bara hætt að blogga sisvona þó það sé komið heim?!?!
óskaplega skemmtilegt :)
hlakka til að lesa 'the rest of the story'
endilega post-a allri ferðasögunni, sé ykkur vonandi fljótlega ...
Luuv
Post a Comment
<< Home